Seiglan sigrar vandan 12 leiðir að lífshamingjunni Kynning:
Virkjaðu bardagamanninn innra með þér
Námskeiðið sem við bjóðum upp á byggir á fjölbreyttum rannsóknum t.d. í lýðheilsu, sálfræði, félags- og fötlunarfræðum, sálgæslufræði, lífeðlisfræði og læknisfræði. Og við nýtum fjölbreyttar aðferðir til að ná því markmiði að bæta andlega líðan á leikandi léttan, áhugaverðan og skemmtilegan hátt. Við nýtum m.a.:
- Vinsemd í eigin garð (Self compassion).
- Fjölbreyttar aðferðir núvitundarhugleiðslu (Mindful theory and meditation).
- Bætum skilningi á mikilvægi endurskoðunar og stefnumótunar á huga og uppbyggingu heilans.
- Samþættum 10 hamingjulykla inní þessar 12 leiðir.
- Styrkjum jákvæða hugsun sem grundvallast á raunveruleikanum eins og hann blasir við og hugmyndafræði sem byggir á (jákvæðri sálfræði). Að samþykkja sjálfan sig hefur lífeðlisfræðileg áhrif á heilann. En ekki síður að uppgötva gimsteinana í lífinu sem eru allt í kringum okkur.
- Lærum ,, að læra‘‘ hvaða bjargir er hægt að hafa ,,ALLTAF’’ með sér. Tilbúnar þegar á reynir í lífinu.
- Æfingar í því hvernig má ná á stjórn á lífi sínu með að endurskoða hugsun sína og viðhorf.
- Æfingar að bregðast við þekktum áskorunum og æfa ,,lærð’’ viðbrögð og með að ná stjórn á líðan og hvernig hægt er að virkja þekkinguna og taka hana með sér út í samfélagið og nýta í samskiptum sínum til að ná árangri í lífinu.
Fyrirspurnum svarað á ljosbrot@lydheilsusetrid.is
Verð: 25.000.-